14.12.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í D-deild Alþingistíðinda. (2272)

138. mál, jarðhitarannsókn

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég vil aðeins benda á, að rannsóknir eins og þær. sem farið er fram á í þessari till., hljóta að kosta verulegt fé, og yrði þá að veita til þessa nokkra upphæð á fjárl., ef þetta yrði samþ. Það hefir oft komið fyrir hér á þingi, að samþ. hafa verið till. um rannsóknir og undirbúning mála, sem kostað hafa mikið fé, án þess að samtímis væru veittar til þessa samsvarandi fjárhæðir. Hefir þetta oft komið sér illa fyrir stj. Mælist ég því til þess við hv. fjvn., ef hún vill mæla með till., að hún leggi þá jafnframt til, að fé verði veitt til þessa á fjárl.