12.03.1938
Neðri deild: 20. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í B-deild Alþingistíðinda. (197)

2. mál, verðtollur

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Þetta frv. er um framlenging á þeim l. um verðtoll og bráðabirgðaverðtoll, sem nú eru í gildi og er gert ráð fyrir, að þau verði framlengd til ársloka 1939. Fjhn. hefir haft frv. til athugunar og mælir með því að það verði samþ. Einn nm. hv. þm. G.-K., var ekki á nefndarfundi, þegar málið var afgr., en mér er kunnugt um, að hann er samþykkur nál. á þskj. 74.