22.03.1938
Neðri deild: 31. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í D-deild Alþingistíðinda. (2965)

67. mál, gjaldeyri handa innlendri iðju

Forseti (JörB):

Það hefir komið fram af hálfu flm. till. um að fresta umr. um málið og vísa því til n.; einnig hefir komið fram till. um að vísa málinu nú þegar til ríkisstj. Ég vil spyrja flm. þeirrar till., hvort hann haldi fast við þá uppástungu sína, þrátt fyrir það, þó að óskað hafi verið, að málinu væri vísað til n. (SkG: Nei, ég tel það ekki skipta miklu máli).