04.03.1940
Neðri deild: 9. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í B-deild Alþingistíðinda. (1271)
40. mál, alþýðutryggingar
Sveinbjörn Högnason:
Það er sama að segja um þetta mál og 6. mál á dagskránni (frv. um lyfjafræðingaskóla Íslands), að að réttu lagi átti það að flytjast af allshn., en af misgáningi hefir það flutzt á milli n. og farið til fjhn. Legg ég til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til allshn.