17.04.1940
Neðri deild: 42. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í D-deild Alþingistíðinda. (2692)

92. mál, jarðræktarlögin

Gísli Sveinsson:

Ég vildi aðeins vekja máls á því, að á þskj. 211 var borin fram fyrirspurn til hæstv. landbrh. af mér og nokkrum öðrum hv. þm. Þessi fyrirspurn var leyfð og samdægurs afgr. til hæstv. ráðh., en engin úrlausn hefir komið á því enn, hvort hæstv. ráðh. vill svara henni eða ekki. Ég vildi leyfa mér að beina því til hæstv. forseta, að hann hlutist til um það, að fá upplýsingar um það hjá ráðh., hvort hann ætlar að svara fyrirspurninni.