30.03.1942
Neðri deild: 27. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (2417)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Sigurður Kristjánsson:

Ég hef lagt til, að sérstök n. yrði látin fjalla um þetta mál. Og hefði ég helzt óskað, að um þetta næðist samkomulag milli allra flokka. Nú veit ég ekki, hvort samkomulag um skipun n. hefur náðst, en ef svo er ekki, vildi ég Leggja til, að n. yrði skipuð 9 mönnum.