20.05.1942
Neðri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í C-deild Alþingistíðinda. (606)

127. mál, sala landspildu úr Sauðhússkógi

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Frv. þetta fer fram á að heimila ríkisstj. að selja hluta af Sauðhússkógi. Eftir þeim upplýsingum, sem allshn. hefur aflað sér um málið, virðist henni ekki óeðlilegt, að salan sé leyfð, en þó því aðeins, að skógræktarstjóri mæli með. N. leggur því til, að frv. verði samþ. með breyt., sem felast í brtt. hennar á þskj. 457.