28.08.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í D-deild Alþingistíðinda. (938)

62. mál, verðuppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir

Gísli Jónsson:

Ég þakka svör þau, sem gefin hafa verið við spurningum mínum, en jafnframt vil ég spyrja hæstv. landbrh., hvort ráðuneytið telur sig hafa heimild til að mæta þessum óskum kjötverðlagsnefndar, án þess að fá sérstaka heimild til þess frá Alþ., því að annars væri ástæða til að setja sérstakt ákvæði um það inn í þessa till.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál.