11.11.1943
Neðri deild: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í C-deild Alþingistíðinda. (2503)

128. mál, iðnskólar

Forseti (GSv):

Sökum þess að hér er um nokkur fjárútlát að ræða, ef samþ. verður brtt. n., vildi ég leggja til, að farið yrði með þetta mál eins og lög gera ráð fyrir, þegar svo stendur á, og látnar yrðu fara fram tvær umr. Yrði þetta skoðað sem fyrri umr. og málinu svo vísað til síðari umr. að þessari umr. lokinni.