15.06.1944
Neðri deild: 39. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (1568)

81. mál, hegningarlög

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. — Mér hefur ekki gefizt tóm til að athuga þetta frv. sem ég vildi, en við fljótan yfirlestur virðist mér, að það þurfi ef til vill nokkurra lagfæringa við. Það mundi tefja málið of mikið að vísa því til n., en það væri æskilegt, að forseti vildi fresta fundi um skeið, til þess að hægt væri að athuga málið nánar.