29.02.1944
Neðri deild: 22. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í B-deild Alþingistíðinda. (363)

40. mál, nýbygging fiskiskipa

Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson):

Ég afhenti skrifstofu Alþingis fyrir hönd n. á tólfta tímanum í morgun skrifl. brtt., sem ég hygg, að sé hjá forseta. Vildi ég óska, að forseti vildi leyfa afbrigði, til þess að till. mætti koma fyrir.