23.02.1945
Neðri deild: 137. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1805 í B-deild Alþingistíðinda. (4702)

113. mál, laun starfsmanna ríkisins

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. — Ég vil aðeins taka það fram, að það eru eðlilega margar brtt. á leiðinni, sem hefur verið gersamlega ómögulegt að semja, fyrr en brtt. n. komu. Þess vegna eru þær í smíðum nú og jafnvel farnar í prentun. Ég held þess vegna, að það væri óheppilegt, ef umr. væri slitið nú þegar.