14.09.1944
Sameinað þing: 42. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í D-deild Alþingistíðinda. (4792)

116. mál, verðlækkun á vörum innanlands

Skúli Guðmundsson:

Hv. þm. V.-Ísf. gat um það, að einn nm. úr fjvn. Nd. hefði gerzt flm. að þessari till. án samráðs við aðra nm. Út af þessu vil ég taka fram til skýringar, sem hv. þm. V.-Ísf. láðist að geta um, að á fundi í þeirri n. í morgun bar ég fram till., sem að efni til var eins og þessi till., en hún féll í nefndinni. Það var því sýnilegt, að ekki var hægt að ná samkomulagi innan fjhn. um málið, og þess vegna gerðist ég 2. flm. þessarar till. Þetta vil ég að komi fram, en ætla annars ekki að svo stöddu að segja meira um málið.