02.03.1945
Sameinað þing: 99. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í B-deild Alþingistíðinda. (5575)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

forseti (GSv):

Ég tel rétt að geta þess, að þinglausnir hafa verið ákveðnar á morgun, en til þess að svo geti orðið, er a.m.k. eftir einn starfsfundur í Sþ. Það verður látið skeika að sköpuðu um þau mál, sem ekki hafa verið tekin á dagskrá, og eins með 7. og 8. mál á dagskrá (till. um framkvæmd l. um stuðning við nýbyggingu fiskiskipa og till. um endurskoðun húsaleiguvísitölu).