29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2166 í B-deild Alþingistíðinda. (127)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Hér liggur fyrir þinginu frv. á þskj. 1019 (frv. um veiting ríkisborgararéttar), og var það afgr. til Ed. fyrir hádegið. Hafi þessu frv. eitthvað verið breytt. í Ed., þá ætti það nú að liggja fyrir Sþ. Ég vil leyfa mér að spyrjast fyrir um það, hvernig um þetta frv. hefur farið, þar sem þetta er eitt þeirra frv., sem lofað var, að skyldi ganga fram á þessu þingi. Vænti ég, að hæstv. forseti Ed. gefi yfirlýsingu um það, hvernig þetta hefur farið.