08.11.1945
Neðri deild: 28. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (1433)

66. mál, sveitarstjórnarkosningar

Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Ég vil skjóta því til hæstv. forseta, hvort hann vildi ekki hringja rösklega, þar sem sýnt er, að menn skipta sér í harðsvíraða flokka um þetta mál, en láti ekki tilviljun ráða um afdrif þessa máls, sem flutt er að beiðni hæstv. ríkisstjórnar, en ég segi já við 1. gr. frv.

2. gr. samþ. með 15:5 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 13:8 atkv