05.12.1945
Neðri deild: 49. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1246 í B-deild Alþingistíðinda. (2179)

32. mál, búnaðarmálasjóður

Jón Sigurðsson:

Ég vil mælast til þess fyrir hönd nokkurs hluta n., ég veit ekki hvort ég á að segja meiri hl., að þetta mál verði tekið af dagskrá, vegna þess að n. vantaði upplýsingar í málinu, sem hún hafði hugsað sér að leggja fram í væntanlegu nál. Þessar upplýsingar koma hins vegar ekki í hendur n. fyrr en kl. 4 í dag, og óska ég eftir því sem einn af flm. frv. og frsm. þessa hluta n., að málið verði tekið af dagskrá.