28.03.1946
Sameinað þing: 35. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í D-deild Alþingistíðinda. (5319)

208. mál, björgunarskúta Vestfjarða

Gísli Jónsson:

Það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði hér áðan, að till. varðandi þessi mál hafa verið til athugunar í fjvn. En nú vildi ég gjarnan fá upplýsingar um, hvort undirbúningur sá, sem rætt er um í 5. lið, hefur farið fram, og hvort þetta er þannig nú, að fjvn. geti fengið uppdrætti að skipunum.