13.11.1945
Efri deild: 29. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í D-deild Alþingistíðinda. (5433)

45. mál, flutningur hengibrúar

Fyrirspyrjandi (Eiríkur Einarsson) :

Ég er þakklátur hæstv. ráðh. fyrir skýrslu hans og greið svör, þó að betra hefði verið að fá jákvætt svar, svo að brúin hefði mátt flytjast til á sínu vatnsfalli, en kringumstæðurnar leyfa það ekki. Ég tel víst, að skýrslan, sem hæstv. ráðh. las upp, sé í alla staði rétt.

Ég endurtek þakklæti mitt til hæstv. ráðh. fyrir greið svör við þessari fyrirspurn og álít hægara að finna lausn á þessu máli, þar sem þessi leið er ekki álitin koma til greina.