13.02.1947
Efri deild: 72. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1713)

112. mál, tilraunastöð háskólans í meinafræði

Sigurjón Á. Ólafsson:

Þegar þetta mál var hér síðast til umr., þá var, ef ég man rétt, gert ráð fyrir færri mönnum en nú er gert í frv. Þar eð n. hefur ekki upplýst, hver þörf er fyrir þessa þrjá sérfræðinga (en það er hægt fyrir 3. umr.), þá greiði ég ekki atkv. á meðan þær upplýsingar eru ekki fyrir hendi.