13.05.1947
Neðri deild: 127. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1684 í B-deild Alþingistíðinda. (2816)

133. mál, bæjarstjórn á Sauðárkróki

Jón Sigurðsson:

Herra forseti. Frv. þetta er komið frá hv. Ed., og þar voru aðeins gerðar örlitlar orðabreyt. á frv., en engar efnisbreyt. Ég vænti þess því, að hv. þd. geti orðið sammála um að samþykkja þetta frv. nú, eins og það var að öllu efni til samþ. hér áður og afgr. til hv. Ed. á sínum tíma.