26.04.1947
Sameinað þing: 47. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 552 í B-deild Alþingistíðinda. (617)

12. mál, fjárlög 1947

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Ég tel nauðsynlegt, að bygging þessi komist upp, og vil ég af minni hálfu greiða fyrir því, að það geti orðið sem fyrst. En ég tel þessa fjárveitingu skipta í því sambandi litlu máli. Hins vegar tel ég, að nær liggi að nota hluta af áfengisgróðanum til bindindisstarfseminnar, og mun ég beita mér fyrir því, að slík löggjöf verði borin fram, og segi því nei.