16.03.1948
Neðri deild: 74. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 455 í C-deild Alþingistíðinda. (2606)

121. mál, Reykjavíkurhöfn

Finnur Jónsson:

Mér skilst, að hv. þm. Snæf. hafi lagt áherzlu á það að fá úr þessu máli skorið. Hann hefur tvisvar fengið það tekið á dagskrá, áður en nál. var til. Ég vil ekki tefja málið meir. Við höfum legið undir ámæli frá honum fyrir að tefja málið. Ég sé því ekki ástæðu til að fresta atkvgr.