22.03.1948
Neðri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í B-deild Alþingistíðinda. (821)

161. mál, bifreiðalög

Frsm. (Finnur Jónsson):

Herra forseti. Ég vildi óska þess, að hæstv. dómsmrh. gæti verið viðstaddur þessa umr„ vegna þess að ég þarf að fá yfirlýsingu frá honum í sambandi við afgreiðslu þessa máls. Ég geri ráð fyrir, að hæstv. ráðh. sé hér í húsinu, en ég get tæplega hafið framsögu í málinu, nema hann sé viðstaddur umræðuna.