10.12.1948
Efri deild: 28. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (158)

92. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Páll Zóphóníasson:

Þar sem ég lít þannig á, að því fari fjarri, að enn sé búið að afla ríkissjóði þeirra tekna, sem hann mun þurfa, eigi niðurgreiðslu- og uppbóta-fjármálastefnu fyrri ára að verða fylgt áfram, en á móti því er ég, og ég tel réttara að hafa tolla þá, er hér ræðir um, hærri en þurfa síðar að bæta við öðrum á nauðsynjar manna, þá segi ég nei.