15.11.1948
Neðri deild: 17. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1299 í B-deild Alþingistíðinda. (1632)

5. mál, niðursoðin mjólk

Samgmrh:

(Emil Jónsson): Herra forseti. Ég þakka hv. þm. A-Húnv., að hann staðfesti, að haga bæri þessari undanþáguheimild eins og ég fór fram á. Tel ég því engan vafa á, að heimildin verði notuð, ef þörf krefur, sem við vonum, að ekki verði.