03.05.1949
Efri deild: 94. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1628 í B-deild Alþingistíðinda. (2408)

204. mál, einkasala á tóbaki

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil enn mótmæla fullyrðingum hv. 1. þm. N-M. og undrast, að hann skuli ekki hafa tekið þær aftur og tel hann minni mann fyrir en áður og vildi ráðleggja honum að hætta hjá ríkinu og gerast tollvörður, með þessum hæfileikum, sem hann hefur til að snuðra um þessi mál.