13.12.1948
Neðri deild: 33. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2096 í B-deild Alþingistíðinda. (2981)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Hallgrímur Benediktsson:

Herra forseti. Ég vildi bara upplýsa í sambandi við það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, að frá fjhn. eru öll mál afgreidd nema þrjú, sem hv. 2. þm. Reykv. nefndi, frv. um togarakaup ríkisins og frumvörpin um fjárhagsráð, málin 34 og 35. Það er af eðlilegum ástæðum, að þessi mál hafa ekki verið afgreidd, því að það er beðið eftir svari. Ég hefði getað skotið þessu að sessunaut mínum, hv. 5. þm. Reykv., en þarna er formaðurinn kominn.