20.12.1948
Sameinað þing: 29. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2168 í B-deild Alþingistíðinda. (3220)

Þingfrestun

Forseti (JPálm) :

Samkvæmt þessari ákvörðun, sem nú hefur verið hér gerð, og þar sem hæstv. forsrh. hefur lýst yfir frestun þingsins, þá skilja nú leiðir okkar þingmanna um stundarsakir, og margir þeirra, sem heima eiga úti á landi, fara sennilega heim til sín næstu daga og ef til vill þeir allir.

Ég vil óska hv. alþm. og hæstv. ríkisstjórn og öllum starfsmönnum þingsins gleðilegra jóla og farsæls komandi nýárs, og öllum utanbæjarþm. og starfsmönnum góðrar heimferðar og gleðilegrar heimkomu.