18.12.1948
Neðri deild: 45. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í B-deild Alþingistíðinda. (334)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Skúli Guðmundsson:

Eins og ég hef áður sagt, þá tel ég, að þessu þingi megi ekki ljúka svo, að þessi mál séu ekki tekin til athugunar. En hins vegar hef ég flutt frv. um þetta efni, sem nú er til meðferðar í þinginu, og ég mun gera kröfu til, að það frv. komi til atkvgr. og þar með þetta mál til afgreiðslu. En meðan ekki er séð fyrir, hvaða afgreiðslu það frv. fær, tel ég ekki ástæðu til að blanda því saman við þetta mál og segi því nei.