08.02.1949
Sameinað þing: 37. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í D-deild Alþingistíðinda. (4735)

55. mál, þjóðaratkvæði um áfengisbann

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Á síðastliðnu ári var útbýtt hér í Sþ. till. til þál. á þskj. 74, og var það 55. mál þingsins. Þetta mál er enn ekki komið á dagskrá, nema að ég bezt veit einu sinni til þess að ákveða, hvernig ræða skyldi. Nú hafa þó verið tekin á dagskrá allmörg mál síðar fram borin og miklum tíma verið varið í ýmis lítt merk mál, svo að ég vil leyfa mér að spyrjast fyrir um það hjá hæstv. forseta, hví málið hafi ekki verið tekið fyrir, og jafnframt óska þess, að ekki dragist nú lengur, að það verði tekið til þinglegrar meðferðar.