06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 879 í D-deild Alþingistíðinda. (5323)

931. mál, tolleftirgjöf af bifreiðum

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. fyrirspyrjanda, að svar tollstjóra við þessari fyrirspurn, þegar ég bað hann um upplýsingar, var það, að til þess að slíkar upplýsingar gætu orðið nákvæmar, þyrfti að fara í gegnum 150 þús. skjöl. Þegar málið horfði þannig við, var horfið frá slíkri rannsókn, en hins vegar hafizt handa um að afla upplýsinga, sem ég áleit, að mundu nægja. Þessar upplýsingar liggja ekki fyrir enn. Hins vegar ættu þær að geta verið tilbúnar í næsta fyrirspurnartíma.