29.12.1949
Sameinað þing: 11. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í D-deild Alþingistíðinda. (3585)

2. mál, heimilistæki

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Mér láðist að spyrja þess, hvort tillögumennirnir ætlist til, að Innkaupastofnun ríkisins setji upp útibú víðs vegar um landið, eða hvort íbúar fjarlægra staða, t. d. á Siglufirði, eigi að sækja tækin í ríkisverzlun í Reykjavík.