12.01.1950
Neðri deild: 28. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (431)

51. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. meiri hl. (Sigurður Ágústsson): Nál. meiri hl. fjhn. á þskj. 204 um mál það, sem hér er til umr., var samþ. á fjhn.-fundi í gær með 4:1 atkv. Hv. 2. þm. Reykv. (EOl) hefur sérstöðu og mun skila séráliti. Meiri hl. n. leggur til, að hv. d. samþykki frv. eins og það var lagt fyrir Alþ., með þeirri smávægilegu breyt. á 4. gr., að í stað þess, sem í frv. stendur: „Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1950“ komi: Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ég tel svo óþarft að fara fleiri orðum um frv. fyrir hönd meiri hl. fjhn.