26.01.1950
Efri deild: 41. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (559)

29. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Forseti (BSt):

Ég skal geta þess, að samkomulag hefur orðið um það í fjhn., þótt ekki væru allir nm. að vísu viðstaddir, að taka aftur brtt. nefndarinnar á þskj. 242 til 3. umr. Brtt. á þskj. 250 er einnig þar með tekin aftur, því að hún á við fyrri brtt. hjá nefndinni.

Enginn hafði kvatt sér hljóðs, er umræðu var frestað hér síðast, og er umræðu lokið.