26.02.1951
Efri deild: 77. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 667 í B-deild Alþingistíðinda. (1562)

151. mál, ríkisreikningurinn 1948

Forseti (BSt):

Ég vil taka það fram eins og hv. þm. veit, að það er ekki sérstaklega þægilegt fyrir forseta að ábyrgjast, á hvaða tíma hæstv. ráðh. geti verið við. En ég get orðið við því í þetta sinn að taka málið af dagskrá, því að það er nógur tími til að afgr. það enn, en ég tek ekki að mér neina ábyrgð á því að geta dregið hæstv. ráðh. hingað nauðugan.