24.10.1950
Efri deild: 9. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (226)

7. mál, skólastjóralaun og kennara við barnaskóla

Frsm. meiri hl. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Að gefnu tilefni, sem fram kom við 2. umr. þessa máls, tók fjhn. málið á ný til athugunar og umræðu. Niðurstaðan af þeim umr. er þó hin sama og áður, að nm. hafa óbreytta afstöðu til málsins. Meiri hl. leggur til, að frv. sé samþ. óbreytt, og sé ég enga ástæðu til að endurtaka rök meiri hl. nú, og skírskota til þess, sem ég sagði við 2. umr. málsins.