03.03.1951
Neðri deild: 78. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1279 í B-deild Alþingistíðinda. (2696)

171. mál, atvinnuréttindi útlendinga

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins geta þess, að það voru gerðar nokkrar breyt. á þessu frv. í hv. Ed., og voru þær gerðar í samráði við útlendingaeftirlitið. Er hér ekki um efnislegar breyt. að ræða, heldur aðeins til þess að gera nokkur ákvæði frv. gleggri og ýtarlegri.

Ég vil leyfa mér að mæla með því, að frv. verði afgr. í því formi, sem það er nú.