23.01.1951
Efri deild: 54. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í C-deild Alþingistíðinda. (3061)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég vil taka það fram, að þó að mér finnist úrskurður forseta vægast sagt mjög vafasamur, þá álít ég, að hann sem fundarstjóri beri ábyrgð á, hvernig fer um málið á þinginu, og ég er alveg á móti því, sem mér heyrðist koma fram áðan hjá honum, að bera þetta undir atkv. deildarmanna. Hann er búinn að kveða upp sinn úrskurð, og ég er á móti því, að hann láti þá fara að breyta honum, enda virðist mér, að það hafi ekki veruleg áhrif á gang málsins.