01.10.1951
Sameinað þing: 1. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (3712)

Drengskaparheit unnið

Aldursforseti (JörB):

Samkvæmt ósk forsætisráðherra verður fundi nú frestað, en fram haldið á morgun, kl. 2 miðdegis.

Þriðjudaginn 2. okt., kl. 2 miðdegis, var fundinum fram haldið. Þeir Helgi Jónasson, 1. þm. Rang., Karl Kristjánsson, þm. S-Þ., og Pétur Ottesen, þm. Borgf., voru nú til þings komnir og sátu fundinn.

Aldursforseti kvaddi sér til aðstoðar sömu skrifara og í fundarbyrjun, þá Jónas Rafnar og Skúla Guðmundsson.