11.12.1951
Neðri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í B-deild Alþingistíðinda. (458)

60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Jóhann Hafstein:

Ég hef skrifað undir nál. meiri hl. fjhn. á þskj. 343, þar sem lagt er til, að frv. verði samþ. með breyt., sem meiri hl. n. flytur á þskj. 347. Um efni brtt. á þskj. 383, sem segja má að sé annað mál, sem flutt er inn í þetta mál, enda flutt í sérstöku frv. í Ed., hef ég óskað eftir að ræða við nm. og hæstv. fjmrh. Þær umræður hafa ekki farið fram, og tel ég mig því óbundinn um afstöðu til þessara brtt. og segi já.