18.12.1951
Efri deild: 47. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í B-deild Alþingistíðinda. (538)

139. mál, almannatryggingar

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Það eru aðeins fáein orð í sambandi við formið á till., sem ég vil gefa skýringu á. Brtt. á þskj. 461 er við brtt., sem prentuð er með nál. meiri hl. á þskj. 365. En fari svo á móti vonum meiri hl., að fyrst yrði felld till. á þskj. 461 og síðan till. á þskj. 365, þá höfum við engan möguleika til að koma fram þessu ákvæði, sem felst í báðum till. og varatill. er um, en það er aðeins leiðrétting, sem allir eru sammála um. En því er varatill. lögð fram sem varatill. við brtt. á þskj. 365, að sú till. kemur til atkv. á eftír tili. á þskj. 461. Varatill. kæmi þá til atkv. að hinum tveim föllnum.