08.12.1952
Efri deild: 36. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1057 í B-deild Alþingistíðinda. (1172)

18. mál, bæjanöfn o. fl.

Forseti (BSt):

Mér virðist, að það geti staðizt, og hafði reyndar hugsað mér það, ef aðaltill. á þskj. 358 yrði felld, að bera þá varatill. upp næst á eftir, því að hún getur vel staðizt, þótt brtt. á þskj. 361 sé samþ., þar sem hún breytir aðeins einu orði, sem er samhljóða í greininni og í brtt., að í staðinn fyrir „í sama sýslufélagi“ komi: í sama hreppsfélagi. — Þessi orð standa bæði í gr. og í brtt. á þskj. 361.