17.12.1952
Sameinað þing: 25. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í D-deild Alþingistíðinda. (2542)

103. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins

Frsm. (Eiríkur Þorsteinsson):

Herra forseti.

Allshn. hefur athugað og kynnt sér efni það, er þáltill. á þskj. 134 felur í sér, en það er, að endurskoðuð verði reglugerð um hina almennu deild hlutatryggingasjóðs bátaútvegsins. Frsm., hv. 2. þm. N M., gerði mjög ýtarlega grein fyrir málinu við 1. umr., og ætla ég þess vegna ekki að fara lengra út í það, en vænti þess fyrir hönd hv. n., að hv. deild samþykki þá afgreiðslu málsins, sem n. hefur gert og sjá má í nál. á þskj. 483.