08.12.1952
Efri deild: 36. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (533)

13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. fjallar um framlengingu söluskattsins. Eins og fjárlfrv. ber með sér og skilmerkilega hefur verið gerð grein fyrir áður á hv. Alþ., einkum í sambandi við þær umr., sem átt hafa sér stað um fjárl., þá er ekki hægt að komast af án þess að framlengja söluskatt þann, sem innheimtur hefur verið undanfarin ár. Er því till. gerð um það með þessu frv. — Ég vil leyfa mér að leggja til, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari 1. umr.