09.11.1953
Neðri deild: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 457 í C-deild Alþingistíðinda. (2633)

89. mál, olíueinkasala

Forseti (HÁ):

Ég vil taka það fram, að ég sé ekki ástæðu til þess að fresta umr. um þetta mál, ég vil benda á, að þetta er 1. umr. Það eru tvær umr. enn um málið í hv. þd., og gefst þá væntanlega tækifæri til að taka upp þráðinn, þar sem frá var horfið, af þeim, sem þess óska.