18.11.1953
Sameinað þing: 17. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í D-deild Alþingistíðinda. (3391)

218. mál, verðtrygging sparifjár

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Hér hefur verið gerð að umtalsefni till. um verðtryggingu sparifjár, sem samþ. var á síðasta þingi. Þessi till. var fram borin á þinginu af mér, hv. 1. þm. Rang. (HelgJ) og hv. þm. S-Þ. (KK), og var till. samþ. nokkuð breytt hér á hæstv. Alþingi.

Mér þykir vænt um, að hv. 1. landsk. þm. hefur hreyft þessu máli í fyrirspurnarformi, og úr því að málinu hefur verið hreyft hér, þá vildi ég nota tækifærið til þess að beina þeim tilmælum til hæstvirtra ráðherra, að athugun þessa máls verði hraðað svo sem föng eru á. Ég vænti þess vitanlega, að jákvæður árangur verði af þessari rannsókn, svo að unnt verði að koma á slíkri tryggingu hið fyrsta.