10.12.1953
Sameinað þing: 24. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (444)

1. mál, fjárlög 1954

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það er sýnilegt, að ef farið er inn á þá braut, sem hér er mörkuð, að greiða hluta af hitakostnaði ákveðinna skóla, þá er ekki stoppað við þessa skóla, sem hér um ræðir, og með því að till. sú, sem var hér áðan borin upp í sambandi við að taka alla skóla landsins, var felld, þá segi ég nei við þessari till., því að það er sýnilegt, að hún markar þá stefnu, að allir skólarnir hljóta að koma fyrr eða síðar inn á, þegar búið er að samþ. þá till., sem hér um ræðir. Ég segi nei.