12.11.1956
Sameinað þing: 7. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2349 í B-deild Alþingistíðinda. (161)

Varamenn taka þingsæti

forseti (EOl):

Áður en gengið er til dagskrár, vil ég biðja hv. þdm. að votta okkar finnsku bræðraþjóð hluttekningu sína í tilefni af því, að fyrrverandi forseti hennar, Paasikivi, hefur látizt í dag og frétt um það nú borizt hingað. Ég vil biðja hv. þm. að rísa á fætur og sýna á þann hátt sína hluttekningu. — [Þm. risu úr sætum.]