29.05.1957
Sameinað þing: 63. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í D-deild Alþingistíðinda. (2523)

154. mál, atvinnuleysi

Páll Zóphóníasson:

Herra forsetl. Það er bara til að fá upplýsingar, sem ég kveð mér hljóðs. — Hv. frsm. þessa máls sagði, að við uppfylltum þau skilyrði, sem þessi samþykkt gerði til að geta orðið hér aðili. Í því sambandi las hann upp 2. gr. Mig langaði til að vita, hverjir eru í þeirri miðstjórn, sem hefur umsjón með öllum vinnumiðlunarskrifstofum á landinu, og hver er sú nefnd, sem kosin er af verkamönnum og atvinnurekendum til að sjá um eða er ráðgefandi við hverja einstaka vinnumiðlunarskrifstofu. Ég þekki hvorki sameinuðu miðstjórnina né n. og langar til að fá upplýsingar, hverjir það eru.